Eigendur og rekstraraðilar einangrunarstöðvarinnar eru Jón Magnússon, Anna Jónsdóttir og Hrefna Jónsdóttir.
Stöðin var stofnuð í maí árið 2005.
Stöðin er staðsett í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Stöðin hefur 23 búr fyrir hunda og 9 fyrir ketti sem eru frá 2 til 4,5 fermetra hvert. Hvert innibúr hefur sér útibúr sem eru frá 7,5 til 11 fm með upphituðu plani hvert. Hvert búr er mjög rúmgott og dýrum raðað þannig sem best þykur fyrir hvert. Dýrin fara oft út á dag og fá næga hreyfingu meðan á dvöl þeirra stendur og reyna starfsmenn að hlúa sem best að þeim meðan einangrun stendur.
Dýraeigendur sem eiga dýr í einangrun geta hringt og forvitnast um dýr sín á meðan dvöl í síma 421-6949.
Einangrunarstöðin í Reykjanesbæ
Sími: 421-6949 / 893-6949
Netfang: einangrun@einangrun.is
Einangrunarstöðin í Reykjanesbæ
|