Einangrunarstöðin í Höfnum
Aðeins 15 mínútur frá flugvelli
Skilmálar
Skilmálar
Bókun
Bókanir fyrir hunda og ketti fara fram í gegnum tölvupóst á einangrun@einangrun.is.
Bókun telst staðfest þegar staðfestingargjald hefur verið greitt. Með staðfestri bókun samþykkir eigandi eða innflytjandi þessa skilmála.
Greiðslur
Hægt er að greiða með kröfu í heimabanka. Einnig kann að vera hægt að semja um greiðsludreifingu, eftir því hvaða greiðsluleiðir eru í boði hverju sinni.
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og gengur upp í heildarkostnað dvalarinnar.
Staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt ef hætt er við innflutninginn eða dýrið kemur ekki til landsins, óháð ástæðu.
Breytingar og afbókanir
Óski eigandi eða innflytjandi eftir að færa bókaðan komutíma eða breyta bókun þarf að tilkynna það með að minnsta kosti 30 daga fyrirvara.
Berist tilkynning síðar getur Einangrunarstöðin í Höfnum innheimt bókaða dvöl að hluta eða öllu leyti.
Innifalið í verði
Í verði dvalarinnar er innifalið:
Akstur frá Keflavíkurflugvelli að stöðinni
Dagleg umönnun dýrsins
Fóður meðan á dvöl stendur
Almenn skoðun dýralæknis og snýkjudýra meðhöndlun
Böðun fyrir útskrift, eftir því sem við á
Þurfi dýr sérstaka meðferð, lyfjagjöf, rannsóknir eða þjónustu dýralæknis vegna veikinda eða annarra sérstakra aðstæðna greiðist sá kostnaður sérstaklega af eiganda.
Heilbrigði og lengd dvalar
Innflutningur dýra felur alltaf í sér ákveðna áhættu. Eigandi ber ábyrgð á að kynna sér gildandi reglur um innflutning og einangrun gæludýra áður en ferðalagið hefst.
Dvalartími getur lengst ef grunur vaknar um smit eða veikindi, eða ef opinber eftirlitsaðili telur þörf á frekari rannsóknum eða eftirliti. Kostnaður sem hlýst af lengri dvöl eða sérstakri meðferð greiðist af eiganda.
Samþykki skilmála
Með því að bóka pláss hjá Einangrunarstöðinni í Höfnum staðfestir eigandi eða innflytjandi að hann hafi lesið, skilið og samþykkt þessa skilmála.