Einangrunarstöðin í Höfnum
Aðeins 15 mínútur frá flugvelli
Bókun
Bókaðu dvöl fyrir hundinn þinn eða köttinn
Við hlökkum til að taka á móti dýrinu þínu hjá Einangrunarstöðinni í Höfnum! Til að bóka pláss sendir þú okkur tölvupóst á einangrun@einangrun.is með eftirfarandi upplýsingum:
*Nafn dýrsins og innflutningsnúmer.
*Tegund dýrsins.
*Landið sem dýrið kemur frá.
*Nafn eiganda.
*Netfang eiganda.
*Símanúmer eiganda.
Í hvaða mánuði dýrið er væntanlegt. Samþykktar dagsetningar finnur þú á síðunni Innkomur hér á heimasíðunni.
Mundu eftir greiðslukvittuninni
Greiðslukvittun þarf að fylgja sem viðhengi í sama tölvupósti og bókunin. Bókun telst ekki gild nema greiðslukvittunin fylgi með.
Ef áætlanir breytast
Þurfir þú að færa dvölina yfir á annað innkomutímabil er hægt að færa staðfestingargjaldið með, svo lengi sem afbókað er með að minnsta kosti mánaðar fyrirvara fyrir fyrirhugaða innkomu.
Staðfestingargjaldið fæst ekki endurgreitt. Sami mánaðarfyrirvari gildir fyrir alla og ekki eru veittar undanþágur frá honum.
Greiðsla fyrir dvölina
Ganga þarf frá greiðslu eigi síðar en viku eftir innkomu. Greiðsluseðill er sendur á þann eiganda sem er skráður á skjölum MAST.
Þú getur einnig greitt með korti eða Visa-láni. Láttu okkur þá vita eigi síðar en viku fyrir innkomu, svo við getum gengið frá réttum greiðslumáta. Ef óskin berst eftir þann frest og fella þarf niður útgefinn greiðsluseðil leggst niðurfellingargjald á skráðan eiganda.
Þér er velkomið að heyra í okkur 💚
Við vitum hversu vænt þér þykir um dýrið þitt. Þér er því velkomið að hringja eða senda okkur tölvupóst meðan á dvölinni stendur til að heyra hvernig því líður og hvernig gengur.
Reikningsnúmer : 0517-26-2530 , kt. 641125-0400 .
IBAN : IS300517260025306411250400
SWIFT : GLITISRE
Nafn dýrs er sett í skýringu greiðslu
Verðskrá
Verð fyrir hvern hund í einangrun
220.000 kr
Verð fyrir hvern kött í einangrun
110.000 kr
Gjald vegna auðkenningar og skráningar hjá Dýraauðkenni ehf.
2.000 kr
Staðfestingargjal eru 50.000 kr og er það greitt við bókun og er dregið af loka greiðslu þegar dýr er að ljúka einangrun